„Hvar er reiðin og umræðan núna? Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir. Sum gagnrýnin var fullkomlega réttmæt og nauðsynleg. Hún kom nánast öll frá fólki vinstra megin og á miðjunni. Hægri flokkarnir voru enda sjaldnast að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að vísa of mörgum úr landi,“ sagði Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, á Facebook-síðu sinni á mánudaginn.
Furðaði Jódís sig á því að sú umræða virtist hafa hætt eftir að Vinstri grænir hurfu úr ríkisstjórn. „Umræðan var bæði hávær og vægðarlaus á þessum tíma. Mótmæli, fólk sem mætti út á Keflavíkurflugvöll til að reyna að stoppa brottflutning, fyrirsagnir og kröfur um að stjórnmálamenn bæru ábyrgð. Allt er þetta fullkomlega skiljanlegt! En brottflutningarnir hættu ekki þegar VG fór úr ríkisstjórn.“ Hún áréttar að hún sé ekki að draga úr eigin ábyrgð eða Vinstri grænna í þeim efnum.
„Fólki er enn vísað úr landi. Börn fá enn ákvarðanir um að yfirgefa landið! En ég upplifi umræðuna allt öðruvísi. Eða réttara sagt upplifi ég bara nánast enga umræðu! Hvar eru mótmælin? Hvar er fólkið sem mætir út á völl? Hvar eru Facebook-færslurnar? Hvar er siðferðilega neyðin sem einkenndi umræðuna fyrir örfáum árum?“ spurði Jódís en tók fram að hún væri ekki að segja þetta til varnar Vinstri grænum heldur gæti slíkt ekki farið eftir því hvaða flokkar væru í ríkisstjórn.
Hótanir beindust að ófáum öðrum í síðasta stjórnarmeirhluta vegna útlendingamálanna og meðal annars gegn lífi og limum þeirra. Þar á meðal ýmsum þeim sem gegndu ráðherrarembættum. Ekki sízt ráðherrum dómsmála. Vitanlega er slíkt algerlega óásættanlegt hverjum sem það beinist gegn og hversu góðan málstað þeir sem kjósa að brúka slík meðöl telja sig standa fyrir. Með hótunum, svo ekki sé talað um líflátshótunum, er einfaldlega farið yfir öll mörk og rúmlega það.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
