Verkamannaflokkurinn í Noregi mælist með einungis 14,2% fylgi samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar í landi sem framkvæmd var af fyrirtækinu Norstat fyrir norsku dagblöðin Dagbladet og Vårt Land og birt í dag. Hefur fylgi flokksins dregizt saman um 6,4 prósentustig frá því í ágúst. Verkamannaflokkurinn, sem er systurflokkur Samfylkingarinnar og fer fyrir núverandi ríkisstjórn Noregs undir forsæti Jonas Gahr Støre, hlaut til samanburðar 26,3% fylgi í síðustu þingkosningum í landinu sem fram fóru haustið 2021 en tæpt ár er þar til næstu kosningar fara fram.
Fram kemur á fréttavef Dagbladet að fylgi Verkamannaflokksins hafi aldrei mælzt minna á síðari tímum, hvorki í könnunum Norstat né annarra fyrirtækja. Næstminnst hafi það verið 14,6% annars vegar skömmu fyrir jólin 2022 og hins vegar í marz 2002 þegar hörð leiðtogabarátta hafi geisað innan flokksins á milli Jens Stoltenberg og Thorbjørn Jagland. Þá segir í fréttinni að flokkurinn sé að missa fylgi í flestar áttir miðað við kannanir. Einkum til Framfaraflokksins og Hægriflokksins. Sá fyrrnefndi mælist nú með mest fylgi, eða 27,4%, og síðarnefndi með næstmest eða 21,5%..
Fylgi flokkanna, sem eru báðir hægramegin við miðju, myndi duga samanlagt til þess að fá meirihluta þingsæta í Stórþinginu samkvæmt fréttinni eða 89 af 169. Framfaraflokkurinn er andvígur inngöngu í Evrópusambandið og vill einnig endurskoða EES-samninginn. Hægriflokkurinn er hins vegar hlynntur hvoru tveggja. Hefðbundið er þar í landi að annað hvort séu myndaðar miðju-vinstristjórnir, líkt og sú sem nú situr, eða miðju-hægristjórnir. Hins vegar hefur aldrei verið mynduð stjórn samstíga um inngöngu í Evrópusambandið og ólíklegt talið að sú verði raunin.
Haft er eftir Støre í fréttinni að um sé að ræða þungt högg fyrir Verkamannaflokkinn en hann ræddi við blaðamenn eftir miðstjórnarfund í flokknum í gær þar staðan var tekin. Støre hefur átt á brattann að sækja innan flokksins að undanförnu en ónafngreindir heimildarmenn í röðum flokksmanna hafa lýst yfir efasemdum um forystu hans i fjölmiðlum og að þolinmæði flokksmanna gagnvart honum færi þverrandi. Þá segir að áhrifafólk innan Verkamannaflokksins vilji losna við Støre úr leiðtogahlutverkinu fyrir kosningarnar en landsfundur flokksins fari fram í apríl.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norska Stórþingið. Eigandi: NN – norden.org)
