Hvað með hina 86 fulltrúa flokksins?

Tuttugu og sjö sveitarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins setja nafn sitt undir grein sem birtist á Vísi fyrr í dag þar sem lýst var yfir stuðningi við framboð Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur til formennsku í flokknum. Talsverður hópur þar á ferð og ágætt framtak í þágu framboðsins þó nöfnin þyki að vísu ekki koma mjög á óvart. Hins vegar er áhugavert að skoða fjölda þátttakenda til að mynda í ljósi þess að aðalmenn Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnum eru 113 talsins.

Með öðrum orðum er einungis um að ræða tæpan fjórðung þeirra sem sitja í sveitarstjórnum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Við fyrstu sýn virtist um að ræða einn sveitarstjórnarmann frá hverju sveitarfélagi en í nokkrum tilfellum er hins vegar um að ræða fleiri en einn frá sama sveitarfélaginu. Þá er enginn frá tæplega helmingi þeirra sveitarfélaga þar sem flokkurinn á fulltrúa. Væntanlega hefur því verið talað við miklu fleiri sveitastjórnarmenn en tóku þátt.

Færa má þannig rök fyrir því að útspilið hafi fremur verið til marks um veika stöðu framboðs Áslaugar að þessu leyti en sterka. Markmiðið hlýtur að hafa verið að fá sem flesta sveitarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eru á meðal þeirra sem eiga sjálfkrafa rétt til setu á landsfundi flokksins, til þess að setja nafn sitt undir stuðningsgreinina enda ljóst að því fleiri sem þeir væru því sterkara væri útspilið. Það að minna en fjórðungur þeirra reyndist til í það segir sitt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)