Tókst að misreikna sig algerlega

Formaður Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, misreiknaði sig algerlega þegar hún taldi sig vera í aðstöðu til þess að þjarma að Sjálfstæðisflokknum sem aldrei fyrr síðasta haust. Vinstri grænir voru í raun komnir á fullt í kosningabaráttu með það að markmiði að reyna að ná til kjósenda sem sagt höfðu skilið við flokkinn. Svandís treysti á það að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vildi alls ekki kosningar og var sjálf ásamt Vinstri grænum engan veginn undir slíkt búin.

Flest bendir til þess að Svandís hafi reiknað Bjarna ágætlega rétt en hins vegar Sjálfstæðisflokkinn sem slíkan alls ekki. Bjarni vildi klárlega leggja ýmislegt á sig til þess að halda stjórnarsamstarfinu áfram. Vafalaust ekki sízt þar sem fyrri ríkisstjórn hans sprakk áður en kjörtímabilinu lauk. Eftir að hafa fundað um stöðuna með bæði með þingflokknum og ekki sízt almennum flokksmönnum gerði hann sér hins vegar grein fyrir því að þolinmæði sjálfstæðismanna væri endanlega þrotin.

Með öðrum orðum lagði Svandís allt undir, taldi sig í sterkri stöðu til þess og tapaði nær öllu. Vinstri grænir féllu þannig sem kunnugt út af þingi og náðu að auki ekki því 2,5% lágmarksfylgi sem þarf til þess að fá styrki úr ríkissjóði. Tilefni þessara skrifa er grein Svandísar á Vísi í gær þar sem segir ekkert aðhald frá vinstri á Alþingi þar sem Vinstri græna sé ekki lengur að finna þar. Hvað sem líður réttmæti þeirrar fullyrðingar getur hún ljóslega fyrst og fremst kennt sér sjálfri um það.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Dómkirkjan og Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)