Taki fólk við peningum sem það á ekki rétt á og er ekki í góðri trú í þeim efnum myndast endurgreiðslukrafa. Þetta segir Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum lögmannsstofunnar Lex, í samtali við Vísi. Þetta sé almenn regla í lögfræði. Tilefnið er sú niðurstaða Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra að ekki eigi að krefjast endurgreiðslu ríkisstyrkja til stjórnmálasamtaka sem veittir voru án þess að lagaleg skilyrði þess væru uppfyllt.
Vísar Arnar Þór til laga um starfsemi stjórnmálasamtaka nr. 162/2006 í færslu um málið á Facebook-síðu sinni. Þar segi í 13. grein að hver sem taki við framlögum sem óheimilt sé að veita viðtöku samkvæmt 6. grein laganna skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Í 6. greininni segi að óheimilt sé að veita viðtöku opinberum framlögum sem ekki rúmist innan ákvæða II. kafla laganna þar sem finna megi meðal annars 5. grein a. um skilyrði fyrir veitingu styrkja.
„Það er skylda á honum [fjármálaráðherra] að láta fylgja eftir kröfum sem ríkið á og það er ekki þannig að menn geti bara gefið það eftir, hvort sem á í hlut á öryrki eða einhver sem hefur fengið ofgreitt úr ríkissjóði af öðrum ástæðum. Það gildir jafnt um alla og menn skulu vera jafnir fyrir lögunum hvað þetta varðar,“ hefur Vísir eftir Arnari Þór. Mögulega færu þeir flokkar í gjaldþrot sem ekki gætu greitt féð til baka. Þá gætu þeir eins og aðrir reynt að semja um kröfuna.
Flokkarnir sem helzt er um að ræða í þeim efnum eru Flokkur fólksins, sem myndar núverandi ríkisstjórn ásamt Viðreisn, flokki ráðherrans, og Samfylkingunni, og Vinstri grænir. Stjórnmálaskýrendur höfðu bent á að það gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir stjórnarsamstarfið ef krafizt yrði endurgreiðslu styrkja sem greiddir hefðu verið í trássi við lög. Ekki sízt þar sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur sagt að flokkurinn hefði ekki tök á að greiða féð til baka.
Fjármálaráðherra hefur sagt að ráðuneyti hans hafi brugðist leiðbeiningarskyldu sinni í þessum efnum. Hins vegar tókst öðrum flokkum einhvern veginn að ganga frá þessum málum. Komið hefur fram í máli Ingu að henni og öðrum í forystu Flokks fólksins hafi verið ljóst um árabil að flokkurinn hefði fengið greitt úr ríkissjóði í trássi við lög. Þá lýsti hún því yfir áður en niðurstaða fjármálaráðherra lá fyrir að féð yrði ekki endurgreitt. Einhver myndi kalla það einbeittan brotavilja.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

