Mögulega bezt fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Með því leggjast gegn því að Flokkur fólksins myndi nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur með Sjálfstæðisflokknum var Inga Sæland, formaður flokksins, ekki ósennilega að gera flokknum stóran greiða. Einungis er þannig rúmlega ár eftir af kjörtímabilinu sem er eðli málsins samkvæmt afar takmarkaður tími til þess að koma málum í borginni til betri vegar eftir það sem á undan er gengið. Hvað þá í samstarfi við Flokk fólksins sem er líklega álíka stjórntækur í borginni eins og í landsmálunum. Aðallega vegna þess að Inga heldur um alla þræði þar eins og annar staðar innan hans.

Verði til dæmis myndaður meirihluti annarra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur en Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins undir forystu Samfylkingarinnar verður það að öllum líkindum áframhald á þeirri óstjórn sem ríkt hefur í borginni um langt árabil. Ef eitthvað verður staðan sennilega mun verri. Hins vegar styttist í kosningar þar sem kjósendur munu hafa val um áframhaldandi óstjórn eða nýjan meirihluta undir forystu Sjálfstæðisflokksins sem mun þá hafa haft alla möguleika á að styrkja stöðu sína. Ekki sízt ef forystusveit flokksins í borginni verður efld frá því sem nú er.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)