Flokkur fólksins samþykkti skilyrðin

Flokkur fólksins kom meðal annarra að samningu lagaákvæðis um skilyrði fyrir veitingu ríkisstyrkja til stjórnmálasamtaka árið 2021 sem hann hefur enn ekki uppfyllt. Skúli Hansen, lögmaður hjá Hansen Legal, benti á þetta á Facebook í gær en flokkurinn hefur engu að síður tekið við 240 milljónum króna í styrki. Þingmenn Flokks fólksins fjölluðu enn fremur um lagafrumvarpið sem innihélt ákvæðið á vettvangi þingsins og samþykktu það. Þar á meðal formaðurinn, Inga Sæland.

Fjármálaráðherra Viðreisnar, Daði Már Kristófersson, lýsti því yfir á föstudaginn að ekki yrði krafizt endurgreiðslu á ríkisstyrkjum til stjórnmálasamtaka sem ekki hefðu uppfyllt lagaskilyrði fyrir viðtöku slíkra styrkja. Einkum með þeim rökum að ráðuneyti hans hefði brugðist leiðbeiningarskyldu sinni. Hafi ekki leiðbeint í þessu tilfelli Flokki fólksins um efni lagaákvæðis sem flokkurinn tók þátt í að semja. Vísaði hann þar í tvö lögfræðiálit sem ráðuneytið varð sér úti um.

Hefur ákvörðun Daða og lögfræðiálitin sem hann vísaði í verið harðlega gagnrýnd í röðum lögmanna. Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda lögmannsstofunnar Lex, sagðist í gær sakna þess að fjallað væri um það í álitunum að beinlínis væri óheimilt að taka við opinberum styrkjum ef skilyrðin væru ekki uppfyllt að viðlögðum sektum eða fangelsi. Þá bæri fjármálaráðherra að endurheimta útstandandi kröfur ríkisins. Alls óháð því hver ætti í hlut.

„Það sem mér finnst áhugaverðast í þessu er það að í greinargerð með frumvarpi laga nr. 109/2021, þar sem þessum skilyrðum var bætt við lög um fjármál stjórnmálasamtaka, kemur fram að framkvæmdastjórar stjórnmálaflokkanna hafi átt aðkomu að ritun frumvarpsins og m.a. verið skipaðir í nefnd sem vann að þessum breytingum. Þá sátu þingmenn þessara flokka á Alþingi og tóku þátt í umræðum og atkvæðagreiðslum um þetta frumvarp,“ sagði Skúli áfram um málið.

„Samt fullyrðir fjármálaráðuneytið að það hafi brugðist leiðbeiningarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum gagnvart stjórnmálaflokkunum. Hvaða leiðbeiningarskyldu hefur stjórnvald gagnvart lögaðilum sem búa ekki bara yfir sérþekkingu á umræddu sviði heldur beinlínis tóku þátt í að semja lagaákvæðið sem á reynir? Svarið hefði ég talið að væri augljóst, þ.e. enga,“ sagði hann enn fremur. Með öðrum orðum stæðist málflutningur ráðherrans alls enga skoðun.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)