Hverfur VG líka í borginni?

„Við Vinstri græn héldum okkar borgarfulltrúa og er það gleðilegt. Hins vegar eru niðurstöður kosninganna veruleg vonbrigði fyrir okkur. Við höfðum væntingar til þess að styrkja rödd félagslegs réttlætis, kvenfrelsis og umhverfisverndar í borgarstjórn með því að bæta við okkur borgarfulltrúum. Okkur tókst það ekki. Meirihlutinn tapaði síðan samtals tveimur borgarfulltrúum og er þar með fallinn.“ Þetta sagði Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, eftir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2022 en flokkurinn hafði þá verið hluti af meirihlutanum í borgarstjórn frá árinu 2014.

„Eftir að hafa ráðfært mig við félaga mína erum við sammála um að niðurstaða kosninganna kalli á að við Vinstri græn leggjumst vel yfir það hvernig okkur getur tekist betur að koma okkar málefnum til skila. Til þess ætlum við að gefa okkur svigrúm. Ég tilkynnti því samstarfsfélögum mínum í fráfarandi meirihluta að við Vinstri græn sækjumst ekki eftir því að taka þátt í viðræðum um meirihlutasamstarf,“ sagði hún enn fremur. Fyrir vikið hafa Vinstri grænir verið hluti minnihlutans í borgarstjórn þar sem flokkurinn hlaut aðeins 4% fylgi og einn borgarfulltrúa kjörinn.

Vinstri grænir hafa sem sagt tekið sér svigrúm síðan samkvæmt orðum Lífar. En hvað hefur gerzt á meðan? Flokkurinn hlaut einungis 2,9% fylgi í þingkosningunum í lok nóvember og féll út af Alþingi eftir að hafa átt fulltrúa þar allt stofnun hans árið 1999. Samkvæmt skoðanakönnun Gallups á fylgi flokka í borgarstjórn Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið mældust Vinstri grænir enn með 4% fylgi líkt og í síðustu kosningum en fylgið var einungis 1,9% í október. Fari þeir í meirihluta gæti það leitt til þess að flokkurinn þurrkaðist einnig út úr borgarstjórn.

Hins vegar standa Vinstri grænir nú í viðræðum um myndun meirihluta í borgarstjórn við Samfylkinguna, Flokk fólksins, Pírata og Sósíalistaflokkinn. Samanlagt með tólf borgarfulltrúa af 23. Vinstri græna þarf því til þess að hægt verði að mynda hann. Oddviti Viðreisnar, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, lýsti því yfir í gær að flokkurinn væri ekki til í meirihlutasamstarf til vinstri. Viðreisn var þó í samstarfi við Vinstri græna í borgarstjórn 2018-2022 og er nú í samstarfi við Flokk fólksins í ríkisstjórn. Væntanlega er það tilhugsunin um samstarf við sósíalista sem stendur aðallega í þeim.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Við Reykjavíkurtjörn. Eigandi: O Palsson – Attribution 3.0 Unported)