Velferðarkerfi evruríkja í hættu

Verði ekki bundinn endir á þann viðvarandi efnahagssamdrátt sem einkennt hefur evrusvæðið til þessa munu ríki þess ekki lengur geta staðið undir „rausnar­legum vel­ferðar­sam­félögum“ sínum. Þetta var haft eftir Christine Lagar­de, forseta Seðlabanka Evrópusambandsins, í viðskiptablaðinu Financial Times á dögunum. Hið sama ætti við um fjárfestingar innan svæðisins og öryggismál. Vandamálið væri ekki sízt viðvarandi skortur á hagvexti á liðnum árum.

Mikill skortur á hagvexti hefur þannig einkennt efnahagslíf evrusvæðisins allt frá því að evran var tekin í notkun fyrir um aldarfjórðugi síðan sem meðal annars hefur lýst sér í lægri vöxtum en annars staðar í þeim tilgangi að reyna að koma stöðnuðu atvinnulífi svæðisins í gang á nýjan leik. Þrátt fyrir á köflum neikvæða vexti hefur það hins vegar ekki skilað tilætluðum árangri. Hefur seðlabankinn fyrir vikið meðal annars varað við yfirvofandi skuldakreppu á evrusvæðinu.

Hagvaxtarvandamál evrusvæðisins snýr einkum að lítilli framleiðni, minnkandi samkeppnishæfni, takmarkaðri nýsköpun og öldrun íbúafjöldans. Fjallað er meðal annars ítarlega um efnahagsvanda svæðisins og Evrópusambandsins í heild í tveimur skýrslum sem unnar voru fyrir framkvæmdastjórn sambandsins og gefnar voru út fyrr á þessu ári. Annars vegar eftir Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og hins vegar Mario Draghi, forvera Lagar­de í embætti.

„Hlutdeild Evrópusambandsins í heimsbúskapnum hefur dregizt saman undanfarna þrjá áratugi þar sem staða þess á meðal stærstu hagkerfa heimsins hefur versnað hratt samhliða uppgangi asískra hagkerfa. […] Jafnvel þó asísk hagkerfi séu ekki tekin inn í myndina hefur innri markaður Evrópusambandsins einnig dregizt aftur úr Bandaríkjunum. Hagkerfin tvö voru svipuð að stærð árið 1993. Hins vegar jókst landsframleiðsla á mann um 60% í Bandaríkjunum á milli 1993-2022 en innan við 30% innan sambandsins,“ segir meðal annars í skýrslu Letta um stöðu innri markaðar Evrópusambandsins.

Draghi dregur að sama skapi upp afar dökka mynd af framtíðinni í þessum efnum: „Takist ekki að auka framleiðni innan Evrópusambandsins munum við neyðast til þess að velja og hafna. Við munum ekki geta orðið í senn leiðandi á tæknisviðinu, leiðarljós ábyrgðar í loftlagsmálum og forystuafl á alþjóðasviðinu. Við munum ekki geta fjármagnað velferðarkerfi okkar. Við munum þurfa að draga úr einhverjum, ef ekki öllum, metnaðarfullum markmiðum okkar.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)