Forystan dragbítur á Sjálfstæðisflokkinn

Tæplega sex hundruð kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi strikuðu yfir nafn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformanns flokksins, eða færðu hana neðar á framboðslistann í þingkosningunum. Nokkru færri strikuðu yfir nafn formannsins, Bjarna Benediktssonar. Bjarni var einnig talsvert strikaður út í kosningunum 2021 en þó mun sjaldnar en nú eða 184 sinnum. Þórdís Kolbrún komst ekki á lista yfir þá sem oftast voru strikaðir út síðast en var næstefst á blaði að þessu sinni. Einungis Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, var ofar.

Horft til hlutfalls útstrikana af fylgi flokka í viðkomandi kjördæmum er Dagur efstur með 15%, þá kemur Jakob Frímann Magnússon, frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík norður með 8%, þá Gunnar Bragi Sveinsson, frambjóðandi Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, með 7,8%, Halla Hrund Logadóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, með 5%, Þórdís Kolbrún með 3,9%, Jón Gnarr, frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík suður, með 3,7%, Bjarni með 3,6%, Karl Gauti Hjaltason, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi, með 3,4%, Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður, með 3,2% og Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, með 3%.


Teljast verður að mörgu leyti skiljanlegt að Bjarni hafi oft verið strikaður út enda hefur hann verið formaður Sjálfstæðisflokksins í rúm 15 ár og verið í framlínunni í mörgum erfiðum málum. Hins vegar er annað með Þórdísi Kolbrúnu sem lýst hefur því yfir ítrekað að hún hafi áhuga á því að taka við af Bjarna þegar að því kemur að hann hættir. Að varaformaður flokksins sem vill taka við forystu hans sé jafnvel umdeildari en formaður sem setið hefur um langt árabil geta ekki beinlínis talizt meðmæli. Ekki sízt þar sem ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn þarf nú á mikilli viðspyrnu að halda.

Hafa má vissulega í huga að Þórdís skipti um kjördæmi fyrir kosningarnar og fór þannig úr oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og náði síðan kjöri í annað sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Engu að síður er ljóst að um mjög mikinn fjölda tilfella er að ræða sem og mikla aukningu á milli kosninga. Þá hefur verið bent á það að Þórdís hefði varla fórnað oddvitasæti, og þar með tilkalli til mögulegs frekari ráðherradóms, fyrir einungis möguleika á öðru sætinu á framboðslista í öðru kjördæmi nema vegna þess að hún hafi ekki talið sig njóta lengur stuðnings í gamla kjördæminu.

Frambjóðendur og sjálfboðaliðar í röðum Sjálfstæðisflokksins hafa talað um það að þeir hafi haft í nógu að snúast í kosningabaráttunni við að svara gagnrýni á Bjarna og ekki sízt Þórdísi sem þeir hafi átt í stökustu vandræðum með enda bæði oft á tíðum um að ræða framgöngu sem erfitt hafi verið að verja og sem þeir sjálfir gjarnan verið sammála gagnrýninni. Með öðrum orðum má ljóst vera að forysta flokksins er í vaxandi mæli dragbítur á hann. Fyrir vikið sé tímabært að endurskoða forystumálin og að lausnin í þeim efnum sé ekki nýr formaður sem sé jafnvel umdeildari en forverinn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)