Fastur liður hefur verið hjá þingmönnum Flokks fólksins í upphafi þingvetrar undanfarin fimm ár að leggja fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um að umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið verði dregin formlega til baka. Síðast 19. september. Hins vegar stendur flokkurinn um þessar mundir í viðræðum um stjórnarmyndun við Samfylkinguna og Viðreisn þar sem meðal annars mun vera rætt um möguleg skref í átt að inngöngu í sambandið.
Vert er að hafa í huga að umsókn ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um inngöngu í Evrópusambandið frá árinu 2009 var aldrei dregin formlega til baka. Í enskri útgáfu bréfs sem þáverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, sendi sambandinu árið 2015 og átti að draga umsóknina til baka var þannig notað hugtakið „candidate country“, sem er annað stig umsóknarferlisins, í stað hugtaksins „applicant country.“
Fróðlegt verður fyrir vikið að sjá með hvaða hætti tekið verði á Evrópusambandsmálinu í fyrirhuguðum stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstjórnar sem mun vera í smíðum. Komi til þess að hún verði endanlega mynduð. Þá einkum í ljósi þeirrar andstöðu við inngöngu í Evrópusambandið og skref í þá átt sem flokkurinn hefur margoft lýst yfir. Þar á meðal þegar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mælti fyrir áðurnefndri þingsályktunartillögu á sínum tíma:
„Hitt er svo önnur saga hvort það sé einhver almennur vilji að ganga í Evrópusambandið. Það hefur ekki verið uppi á pallborðinu hjá Flokki fólksins í það minnsta. Annars hefði ég sennilega ekki verið sú sem hefði stigið fram til þess að leggja fram þessa þingsályktunartillögu.“ Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður flokksins, sagði af sama tilefni: „Við höfum ekkert þangað inn að gera og eigum bara að draga burt þessa aðildarumsókn, ef hún er til staðar.“
Daginn eftir þingkosningarnar á dögunum lét Inga þau orð falla í Spursmálum að Evrópusambandsmálið væri einungis samningsatriði. Spurð hvort hún væri öll að mýkjast upp í þessum efnum svaraði hún: „Ég hef alltaf verið svona mjúk, ég þóttist bara ekki vera það.“ Hvort Flokkur fólksins hafi einungis þótzt vera andvígur skrefum í átt að inngöngu í Evrópusambandið kemur væntanlega í ljós þegar og ef fyrirhugaður stjórnarsáttmáli flokkanna liggur fyrir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið og Dómkirkjan. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
