Til þess að útskýra fyrir almenningi ferlið sem sem hefst sótt er um inngöngu í Evrópusambandið hefur framkvæmdastjórn þess gefið út sérstakan bækling sem ber heitið „Understanding enlargement“. Þar er meðal annars útskýrt með ágætlega skilmerkilegum hætti hvers eðlis þær viðræður eru sem fram fara á milli sambandsins og umsóknarríkja í ferlinu. Sú lýsing rímar ekki beinlínis vel við fullyrðingar sumra um að hægt sé nánast að semja um hvað sem er í þeim efnum.
„Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í Evrópusambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum sambandsins – um 100.000 blaðsíður af þeim. Og þessar reglur (einnig þekktar undir heitinu acquis, franska fyrir „það sem hefur verið samþykkt“) eru ekki umsemjanlegar.“
Fram kemur enn fremur að hvað varði umsóknarríki snúizt viðræðurnar fyrst og fremst um það að komast að samkomulagi við Evrópusambandið um það með hvaða hætti og hvenær reglur þess séu teknar upp og innleiddar sem og verklagsreglur í þeim efnum. Fyrir sambandið sé hins vegar mikilvægt að tryggt sé að umsóknarríkið standi við umsamdar tímasetningar þegar komi að innleiðingu á reglum þess og að ríkið nái sömuleiðis tilskyldum árangri þegar komi að innleiðingu þeirra.
Viðræðurnar snúast þannig einungis um það hvernig og hvenær umsóknarríki undirgengst regluverk Evrópusambandsins en ekki hvort það geri það. Semja má um tímabundna aðlögun að eintökum reglum og hið sama á við um svonefndar sérlausnir, sem heita raunar gjarnan sérstakar aðlaganir (e. specific adaptations) í gögnum sambandsins, fela aðeins í sér tæknilega útfærslu á upptöku tiltekinna reglna og breyta því ekki að ríkið fer undir vald sambandsins í þeim efnum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
