Hver Bandaríkjaforsetinn á fætur öðrum, bæði úr röðum demókrata og replúblikana, hefur á liðnum árum og áratugum gagnrýnt Evrópuríki fyrir það að standa ekki við lágmarksskuldbindingar sínar um fjárframlög til varnarmála þegar kemur að aðild þeirra að NATO þó þeir hafi komið gagnrýni sinni á framfæri á mun dannaðri hátt en Donald Trump. Sjálfir standa Bandaríkjamenn undir miklum meirihluta reksturs varnarbandalagsins og hafa gert áratugum saman.
Hins vegar segir það sig sjálft að með því að standa ekki við skuldbindingar sínar um framlög til varnarmála vegna aðildar þeirra að NATO eru umrædd Evrópuríki í reynd ekki að virða grunnregluna um að árás á eitt ríki bandalagsins sé árás á þau öll. Takmarkað gagn er vitanlega að því að segjast reiðubúinn til þess að koma öðrum til varnar þegar viðkomandi hefur í raun og veru alls enga burði til þess. Trump fann ekki upp þessa gagnrýni sem á fyllilega rétt á sér.
Ófær um að verja Evrópu án Bandaríkjanna
Veruleikinn er einfaldlega sá að vegna vanrækslu sinnar í varnarmálum um langt árabil eru flest Evrópuríki, þar á meðal og ekki hvað sízt forysturíki Evrópusambandsins, í reynd ófær um að sinna eigin vörnum og hvað þá annarra. Taka mun flest Evrópuríki mörg ár að byggja upp varnir sínar takist það á annað borð. Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar um bót og betrun hefur þó enn sem komið er lítið lagast í þeim efnum og alls óvíst hvort sú verði yfir höfuð raunin. Það má þó vona.
Hvað varðar framtíð NATO er ljóst að jafnvel þó svo ólíklega vildi til að Bandaríkin segðu skilið við bandalagið yrði Ísland eftir sem áður í varnarsamstarfi innan þess við meirihluta Evrópuríkja auk Kanada og þar af nær öll ríki Evrópusambandsins. Einungis fjögur ríki þess. Austurríki, Írland, Kýpur og Malta sem hafa afar takmarkaða varnargetu, standa utan NATO. Þá yrðu sem fyrr innan bandalagsins ríki eins og Bretland og Noregur sem eru ekki innan sambandsins.
Hvorki Trump né aðrir áhrifamenn í bandarískum stjórnmálum hafa þess utan kallað eftir uppsögn varnarsamningsins við Ísland. Þvert á móti hafa bandarískir ráðamenn ítrekað lýst yfir vilja til þess að efla varnarsamstarf við landið. Bæði í stjórnartíð Trumps og demókrata. Þar vegur sem fyrr þungt landfræðileg staðsetning Íslands sem frá síðari heimsstyrjöldinni hefur skipt máli fyrir bandarískar landvarnir. Ísland er þannig í allt annarri stöðu en önnur Evrópuríki.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Bandarísk flotadeild. Eigandi: Bandaríski sjóherinn)
